|
||
|
.:: 9.7.2011 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::. Nýjar myndir frá júní komnar. Bjarki orðinn eins árs. Kominn með sjö tennur. Algjör gleðipinni. Magnús alltaf hress og kátur. Nú fer að styttast í brúðkaup skötuhjúanna og undirbúningur að hefjast á fullu. Hlökkum SVAKALEGA mikið til. .:: 6.6.2011 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Halló allir. Hér gengur allt sinn vanagang. Nú fer Bjarki alveg að verða eins árs. Við héldum upp á afmælið um helgina og gekk það mjög vel. Setti inn nokkrar myndir frá maí og einnig frá afmælinu hans Bjarka og frá frændsystkinahitting. Kv, Hlíðargerðisgengið .:: 2.5.2011 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Gleðilegt sumar allir saman ! Við vorum tvær nætur uppí bústað um páskana og höfðum það voða gott. Það voru skreytt egg og falin egg og mikið borðað af páskaeggjum. Bjarki fékk meira að segja að smakka. Bjarki er aðeins að skána í skapinu en eins og ég sagði síðast þá hafði hann verið svolítið pirri pú. Hann er reyndar búinn að vera svakalega kvefaður og mig grunar að hann hafi verið með smá í eyrunum en það er nú allt saman að lagast núna. Svo verður Bjarki 1 árs í næsta mánuði. Stuð !!!!! .:: 2.5.2011 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Við fórum til Akureyrar á skíði í eina viku í lok mars og höfðum það alveg svakalega gott. Magnús lærði að skíða. Hann byrjaði á töfrateppinu og með band utan um sig en á síðasta degi var hann farinn að skíða alveg einn niður diskaliftuna og fór upp og niður, upp og niður stundum án þess að stoppa eða tala. Ótrúlega gaman !!! Hann meira að segja kom með okkur afa upp stólalyftuna í eitt skiptið en það var kannski aðeins of bratt fyrir hann. Bjarki er nú farinn að standa upp við allt og gengur aðeins með en hann er frekar óstöðugur og dettur því oft. Hann hefur verið frekar pirripú undanfarið. Spurning hvort það sé eitthvað að angra hann, tennur eða eyrun eða eitthvað. Það er erfitt að vita. Kannski er hann bara orðinn svolítið frekur greyið. Því hann er mjöööööög kátur inná milli. Kemur í ljós. Já svo byrjaði Bjarki að taka snuð í mánuðinum, ekki seinna vænna !!! Setti inn nokkrar myndir frá Akureyri. Enjoy !!! .:: 17.3.2011 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Það var fjör í febrúar. Allir hressir og glaðir. Það nýjasta er að Bjarki er farinn að skríða út um allt og hann fékk líka tvær tennur í efri góm. Setti inn nokkrar myndir .:: 3.2.2011 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Jæja, þá er janúar á enda. Bjarki fékk fyrstu tvær tennurnar sínar í mánuðinum og er loksins farinn að sitja alveg óstuddur. Svo færir hann sig úr stað með fótunum. Hann fékk líka sitt herbergi og var það mikill munur. Hann hætti um leið að drekka á nóttunni og sefur nú alla nóttina frá kannski níu til sjö-átta án þess að vakna. Mjög næs. Magnús er alltaf jafnhress. Hann elskar bróður sinn mjög mikið og segir það stundum við hann. Hann er mjög góður að leika við hann og geta þeir dundað heillengi saman. Magnús elskar að leika sér og fer hann oftast beint uppí herbergi eftir leikskóla til að leika og oft er hann sönglandi allan tímann. Stundum þegar við köllum á hann í mat þá segir hann: Ég er í leik, ekki trufla. Hann er líka orðinn svolítið líkur mömmu sinni þegar hún var lítil, þ.e. orðinn svolítill snyrtipinni. Honum finnst mikið sport að gera fínt hjá sér og svo raðar hann stundum fötunum sem hann á að fara í upp á gólfið. Við enduðum mánuðinn á að fara til Akureyrar með góðum vinum (gleymdum myndavélinni) og var það mjög gaman. Það var ekkert sérstakt veður og komumst við aðeins klukkutíma á skíði en það var í staðinn mikið leikið og mikið spilað. Nú er Bjarki búinn að vera lasinn í nokkra daga og höngum við því bara inni þessa dagana. Bæ í bili. .:: 3.2.2011 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Nú eru loksins komnar inn nokkrar myndir frá því í desember. Í byrjun desember fékk öll fjölskyldan gubbupest nema Magnús. Það var ógeð og vorum við lengi að ná okkur eftir það. En sem betur fer hresstumst við nú og vorum súperhress um jólin. Látum myndirnar tala sínu máli. .:: 30.11.2010 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Hæ hó. Nú fer Bjarki óðum að nálgast hálfs árs aldurinn. Skelfilegt hvað tíminn líður hratt. Hjááálp !!!! Við fórum nokkrum sinnum í sund í nóvember. Það er alltaf jafn skemmtilegt. Svo erum við bara búin að fara í heimsóknir og gera hitt og þetta. Bjarki er farinn að velta sér hringi á gólfinu og finnst allt alveg svakalega spennandi og er voða duglegur að dunda sér. Við fórum á jólahlaðborð í mánuðinum og voru amma Dóra og afi Maggi að passa og gett það alveg glimrandi vel. Bjarki tók pelann eins og ekkert væri og sofnaði vært í rúminu sínu. En Bjarki var því miður lasinn núna í lok nóvember. Hann fékk háan hita í tvo daga og hor og hósta sem hann er enn með og með þessu svaf hann illa og var pirri pú. En hann er allur að koma til. Nú erum við bara farin að undirbúa jólin, búin að hengja upp jólaseríur og setja upp aðventuljós og gera aðventukrans. Svo er næst á dagskrá að baka og fleira jóló. En þangað til á nýju ári þá segjum við bara gleðileg jól allir saman og gott nýtt ár. Komum með næstu fréttir og myndir á árinu 2011. Bæ á meðan, Hlíðargerðisgengið .:: 2.11.2010 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Jæja pæja, voðalega líður tíminn. Við vorum aðeins kvefuð eftir afmæli Magnúsar og fékk Magnús líka gubbupest og hita í fyrsta skipti síðan í júlí í fyrrasumar takk fyrir. En hann var fljótur að jafna sig. Við fórum til Akureyrar með góðum vinum í lok október og var það í þriðja skipti sem Bjarki fer til Akureyrar og aðeins 4 mánaða. Gott að eiga aðgang að íbúð þar. Það er svona eins og að koma til útlanda. Bjarki svaf að vanda alla leiðina með einni drekkupásu. Á Akureyri komst Bjarki uppá lagið að drekka oft á nóttunni (hafði aðeins drukkið tvisvar á nóttu frá fæðingu) og notaði mömmu sína sem snuð. Það var ekkert voðalega þægilegt fyrir móðurina en voða kósý fyrir Bjarka. En þegar við komum heim tókum við á þessu og var Haukur með hann í nokkrar nætur og nú sefur hann alveg frá 21-5/6 og drekkur og sefur svo til 7-8. Frekar næs sko. Svo bara sefur hann voða mikið á daginn líka. Þannig að það er yfir engu að kvarta hér á bæ. Svo má ekki gleyma að við eignuðumst lítinn frænda þann 16. október og er það Steindór Gunnhildar og Einarsson. Svo eignuðumst við líka tvær nýjar frænkur í september og er það Lilly dóttir Grétu og Christian og Sólveig Hrönn dóttir Dóru og Ægis. Þannig að það verður sko fjör í fjölskylduboðunum um jólin See you later aligator !!!
.:: 2.11.2010 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Í september var gaman. Bjarki Þór fór að hlæja á fullu rétt áður en hann varð þriggja mánaða og hefur ekki stoppað síðan. Skemmtilegast finnst honum að horfa á sjálfan sig í speglinum og spjalla. Við fórum nokkrum sinnum í sund sem var mikið fjör. Svo fórum við í viku til Gautaborgar að heimsækja vini. Það var alveg svakalega skemmtilegt og gekk ferðalagið alveg glimrandi vel. Bjarki var farinn að sofna sjálfur í rúminu sínu fyrir ferðina en úti vildi hann sko ekki sofa í neinu ferðabarnarúmi, neitaði því harðlega. Hann fékk því að sofna uppí hjá okkur og sofa þar alla nóttina, voðalega kósý. Svo kenndum við honum aftur að sofna sjálfum þegar við komum heim og var það ekkert mál. Og fyrir töluáhugamennina þá var Bjarki Þór 6.675 g og 62,5 cm í 3 mánaða skoðuninni. Af Magnúsi er það að frétta að hann er nýbúinn að skipta um deild á leikskólanum og er hann nú kominn á stóru deildina. Það finnst honum mikið sport og af því hann er kominn á stóru deildina og er orðinn stóri bróðir þá heldur hann stundum að hann megi gera allt sem hann vill. Þann 6.október varð Magnús svo 4 ára og héldum við tvö afmæli. Endilega kíkið á myndirnar. Kv, Hlíðargerðisgengið ógurlega sem finnst litla sæta dúkkuhúsið sitt allt í einu orðið allt of lítið .:: 30.8.2010 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Hæ hæ allir saman. Nú er Bjarki Þór orðinn 11 vikna og verður brátt 3 mánaða. Ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram. Fyrir þá sem hafa áhuga á tölum þá var Bjarki 5740g og 59 cm í 9 vikna skoðun, þyngri en Magnús var þegar hann var 3 mánaða. Bjarki er farinn að hjala og brosa alveg á fullu. Hann sefur og drekkur alveg svakalega vel og á bróður sem elskar hann út af lífinu. Ekki amalegt það. Magnús er alltaf jafn hress og kátur. Hann er mikið að velta fyrir sér ýmsum hlutum og spyr og spyr af hverju, hvernig og hvar ???? Hann ætlar að verða pabbi þegar hann verður stór og hann vill giftast mömmu sinni og verður voða leiður þegar honum er sagt að það er ekki hægt. Hann sagði: En ef ég finn mér konu, þá á ég ekki heima hjá ykkur. Ég vil eiga heima hjá ykkur í þessu húsi. Við höfum haft það mjög gott í þessum mánuði. Um Verslunarmannahelgina vorum við uppí bústað í rólegheitunum, helgina þar á eftir fórum við til Akureyrar í annað sinn í sumar og höfðum það alveg svakalega gott með góðum vinum. Bjarki svaf aftur alla leiðina til og frá Akureyri með einu drekkustoppi. Svo gistum við tvær nætur í bústað á Bifröst og erum búin að fara í sund og göngutúra og fl. og fl. Það eru komnar inn myndir frá lok júlí og ágúst. Góða skemmtun að skoða. .:: 23.7.2010 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Hæ hæ. Nú er litli kútur orðinn 6 vikna. Vorum í 6 vikna skoðun áðan og hefur hann þyngst um rúmt kíló á þremur vikum. Hann er sem sagt orðinn 4,9 kg. Það gengur mjög vel með hann. Við höldum jafnvel að hann hafi smitast af hlaupabólunni af Magnúsi þar sem hann fékk nokkrar bólur á líkamann sem urðu svo að sárum og eru að hverfa núna. En hann fann ekkert fyrir þessu þannig að þetta var ekkert mál. Við fórum til Akureyrar um daginn og vorum í nokkra daga. Það var mjög skemmtilegt og góð tilbreyting. Það var ekkert mál að ferðast með strákana. Sá litli svaf allan tímann til og frá Akureyri og Magnús var eins og ljós líka. Svo var skírn síðustu helgi. Við héldum hana heima og fengum þvílíkt gott veður þannig að við skírðum úti á palli. Mjög notalegt. Þá fékk litli kútur nafnið Bjarki Þór. Bæ í bili. Nýjar myndir komnar. Endilega lítið á. .:: 24.6.2010 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Jæja. Nú er litli kútur orðinn tveggja vikna og tveggja daga gamall. Allt gengur enn mjög vel. Hann nánast bara sefur og drekkur. Við fórum í fyrsta göngutúrinn þegar hann var tíu daga gamall og var það alveg yndislegt. Þvílíkur munur að vera í fæðingarorlofi að sumri til. Magnús er mjög hrifinn af litla bróður sínum og knúsar hann og kyssir í tætlur á hverjum degi. Magnús vaknaði reyndar í gær með hlaupabóluna og má því ekki vera mjög nálægt litla bróður í nokkra daga og skilur hann það alveg. Þeir eru laglegir bræðurnir, Magnús með bólur um allan líkamann og litli kútur kominn með hormónabólur í andlitið. Læt myndir af því næst. Setti núna inn myndir af viku tvö . Endilega skoðið og endilega kvittið í gestabókina þeir sem geta (ekki hægt á öllum tölvum, ætlum að fara að betrumbæta síðuna fljótlega). Bæ í bili .:: 17.6.2010 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Hæ hó jibbí jei og jibbí jei, það er kominn 17.júní !!! Í dag átti litla krílið að koma í heiminn en það lét sjá sig þann 9.júní í staðinn. Þá vorum við stödd í afmæli hjá Úlfhildi frænku þegar vatnið fór um klukkan 19. Amma Dóra og afi Maggi tóku Magnús með heim og við hjónaleysin ákváðum að koma við í Hreiðrinu, svona aðeins til að láta tékka á stöðunni. Þegar við komum þangað rétt fyrir kl. 20 var allt komið á "full swing" þannig að við fórum ekkert lengra. Stuttu seinna fór ég í baðið og litli kútur kom svo syndandi í heiminn rétt fyrir kl. 22. Hann fæddist í sömu laug og Magnús og okkur fannst strax eins og þetta væri bara Magnús fæddur aftur. Þeir eru það líkir. Nú er litli kútur orðinn viku gamall og höfum við haft það mjög gott. Hann drekkur vel og sefur vel og er mjög vær og góður. Magnús tekur honum svakalega vel og elskar hann í tætlur !!! Hann passar mjög vel uppá hann, kyssir hann góða nótt og bless á morgnanna þegar hann fer í leikskólann. Hann á eftir að verða svooooo góður stóri bróðir. Við höfum fengið fullt af gestum fyrstu vikuna og hlökkum til að fá ykkur sem eftir eiga að koma. Allir innilega velkomnir !!! Látum myndirnar tala sínu máli. Kv, Hlíðargerðisfjölskyldan .:: 6.6.2010 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Hæ hó jibbí jei og jibbí jei, það fer alveg að koma 17. júní !!! En maímánuður er búinn að vera mjög skemmtilegur. Gott veður og nóg að gera. Magnús er alltaf svo glaður og kátur. Höfum aðeins verið að undirbúa komu litla krílisins, finna til föt og fleira frá Magnúsi. Magnús hefur verið duglegur að hjálpa til. T.d. þegar hann finnur eitthvað barnadót inní herberginu sínu kemur hann með það til okkar og segir að litla barnið megi fá það. Svo knúsar hann bumbuna alveg í tætlur. Hann á eftir að vera svoooo góður stóri bróðir, enginn vafi um það. En nýjar myndir frá maí komnar inn og eitt myndband. Bæ í bili. Næst þegar við skrifum fáið þið fréttir af nýjum fjölskyldumeðlim sem væntanlegur er 17.júní, spennó spennó. .:: 1.5.2010 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Höfðum það svakalega fínt um páskana. Vorum nokkra daga upp í sumarbústað og slökuðum vel á og fengum góða gesti. Fórum á tvö leikrit í mánuðinum. Fyrst fórum við á Emil í Kattholti sem var sýnt í áhugamannaleikhúsi í Hveragerði. Magnús skemmti sér mjög vel enda þekkti hann söguna vel því við vorum nýbúin að lesa bókina. Svo sáum við líka Skoppu og Skrítlu í Borgarleikhúsinu og var það líka fín sýning. Magnús fékk íþróttaálfageisladisk að gjöf í mánuðinum og hefur hann verið algjörlega hugfanginn af honum síðan. Einn daginn fór ég í jóga og var burtu í ca. einn og hálfan tíma. Þegar ég kom heim lak af honum svitinn. Þá hafði hann verið að hlusta á diskinn og dansa og gera æfingar með allan tímann sem ég var í burtu, algjörlega í sínum eigin heimi. Svaka fjör. Segjum þetta gott í bili, endilega kíkið á nýju myndirnar. .:: 1.5.2010 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Fórum í nokkra daga til Akureyrar í mars ásamt ömmu Dóru, afa Magga og Ljósvallagötugenginu. Haukur komst því miður ekki með því hann þurfti að vera á námskeiði tengt vinnunni alla þessa daga. En Magnús prófaði þar skíði í fyrsta sinn. Hann byrjaði á því að fara nokkrar ferðir með afa sínum og helst vildi hann gera allt sjálfur og varð hann fljótt þreyttur. Svo fóru allir uppí fjall og við mæðginin ætluðum að halda heim á leið en þá spurði Magnús hvort hann mætti ekki skíða meira og gat móðirin ekki neitað því. Ég fór með honum ábyggilega 20 ferðir og gekk bara glimrandi vel. Hann gat farið sjálfur upp lyftuna en svo brunaði hann bara niður og var ég orðin svolítið þreytt á að hlaupa á eftir honum enda komin rúmlega 6 mánuði á leið. Í mánuðinum fór Magnús í fyrsta sinn til tannlæknis og stóð hann sig svakalega vel þar. Heilar tuttugu hreinar og fínar tennur er hann með strákurinn Annars er bara allt við það sama. Magnús er áfram alveg svakalega heillaður af íþróttaálfinum og gjörsamlega elskar allt sem er blátt. Hann hefur tvisvar óskað sér í mikilli einlægni að hann myndi hitta íþróttaálfinn sjálfan í persónu og svo langar hann alveg svakalega í búninginn. Hann er búinn að ákveða að á öskudaginn á næsta ári ætlar hann að vera íþróttaálfurinn aftur og vera þá í búningnum, ekki í náttfötum eins og síðustu tvö ár. En segjum þetta gott í bili. Endilega kíkið á nýju myndirnar. Læt tvö gullkorn fylgja hér að lokum: Ég sá að það var komin ný tegund af jógúrti í búðirnar, íþróttaálfajógurt, og ákvað ég að gleðja Magnús með því að kaupa það fyrir hann og sagði við hann að hann mætti fá það í eftirrétt það kvöldið. Þegar Magnús heyrði það varð hann yfir sig hrifinn og sagði: "Vá, ég er svo glaður, mamma. Ég er svo stoltur af þér, mamma." Annan dag sagði ég við hann: Eigum við að lesa einhverja góða bók í kvöld? Hann sagði: Já. Þá sagði Haukur: Ég get líka lesið fyrir þig ASP. net bókina (einhver tölvunördabók) og þá sagði Magnús mjög hneykslaður: "Eh, það er ekki til í mínum heimi, pabbi." .:: 3.3.2010 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Febrúar - mánuður íþróttaálfsins Það er búið að vera mikið fjör í febrúar. Byrjaði auðvitað með bolludeginum, sprengideginum og öskudeginum. Magnús var búinn að gera bolluvönd í leikskólanum fyrir bolludaginn og hann vakti okkur foreldrana með því að læðast inní herbergi til okkar og öskra "bolla, bolla, bolla" og bollaði okkur í spað. Svo kom sprengidagur og setti hann þá upp öryggisgleraugun frá því á gamlárskvöld, ...... eitthvað aðeins að ruglast. Svo kom öskudagur og þá var Magnús auðvitað klæddur sem íþróttaálfurinn. Grímur gisti hjá okkur eina nóttina og voru þeir frændurnir í eins náttfötum, íþróttaálfanáttfötum að sjálfsögðu, og voru þeir meiri hluta kvöldsins að gera íþróttaæfingar eins og sjá má á myndunum. Algjörir álfar !!! Svo sagði Magnús á leið í leikskólann einn morguninn: "Mamma, mig langar í stóran íþróttaálf. Getum við ekki bara teiknað íþróttaálf á stórt spjald og svo bara lifnar hann við?" Svo er Magnús líka í íþróttaskóla á laugardögum og þar fær hann góða útrás fyrir öllu íþróttaálfaæðinu, hehe. Bæ í bili
.:: 11.2.2010 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Við tókum engar myndir í janúar þannig að ég skrifa bara eitthvað skemmtilegt í staðinn, t.d. nokkur samtöl sem Magnús hefur átt við okkur foreldrana. Í vikunni vorum við mæðginin að labba heim frá leikskólanum og einn daginn hljóp Magnús á undan mér. Ég kallaði á hann og sagði honum að stoppa og sagði ákveðið að það mætti ekki hlaupa á undan því það gætu komið bílar. Daginn eftir stoppaði Magnús við tré í smá stund eitthvað að skoða og þá labbaði ég aðeins á undan. Þá sagði Magnús með mjög ákveðinni röddu: „ Mamma, ekki fara á undan, það getur verið hættulegt. Er ég glaður núna (og setur á sig mikinn reiðisvip og smá glott líka)?? Ha??Er ég glaður?? Nei, ég er sko reiður." (hann er að læra um tilfinninguna reiði í leikskólanum þessa vikuna.) Magnús er nýbúinn að læra orðið: „ dáinn“ því bæði afi Hauks og amma dóu í janúar og hann er mikið að velta því fyrir sér. Það voru t.d. vettlingar í hólfinu hans á leikskólanum um daginn sem Magnús átti ekki og við vorum að velta því fyrir okkur hver ætti þá. Við sáum að þeir voru ómerktir og Magnús vildi setja þá í hólf sem var ómerkt. Ég spurði þá hvort enginn ætti þetta hólf. Þá sagði Magnús: „Nei, hann bara dáinn“ og svo var hann líka að spyrja hvar bíll nágrannans væri eiginlega (nágranninn einnig nýlega fallinn frá) og við sögðum að kannski væri búið að selja bílinn því að gamli maðurinn væri dáinn. „Ó já“, sagði Magnús. „En er konan hans þá bara alein heima?“ Hvert fór hann eiginlega? Við sögðum að hann hefði farið upp til himna. „ En hvernig kemst hann eiginlega niður?“ Magnús er ekkert smá spenntur yfir komu nýja systkinisins og þegar hann frétti af því (einhvern tíman fyrir jól) þá sagði hann: „Mamma, þú verður að prjóna bláa íþróttaálfapeysu fyrir strákinn og bleika peysu fyrir stelpuna og svo verðum við að kaupa tvo vagna, einn fyrir strákinn og einn fyrir stelpuna.“ Hann hélt greinilega fyrst að börnin væru tvö. Svo þegar hann talar um eitthvað sem við munum gera í framtíðinni þá nefnir hann alltaf litla barnið líka. Hann vill hafa það með í að gera hitt og þetta. Hann var meira að segja að telja hvað við værum mörg á heimilinu og taldi hann litla bumbubúann með. Algjör dúlla. Svo einu sinni var Ketill Gauti frændi í heimsókn og hann var að spila á mjög háværa flautu sem fullorðna fólkið var að reyna að ná af honum. Þá kom Magnús bara askvaðandi að honum og tók af honum flautuna og sagði mjög ákveðið: „ Litla barnið vill ekki svona læti, það er að hvíla sig inní bumbunni á mömmu“. Við höfum tekið eftir því undanfarið að Magnús er alveg afskaplega kurteis strákur. Haukur hafði sett Diego þætti inná sjónvarpstölvuna og ég sagði Magnúsi frá því. Hann var svakalega spenntur og fékk að horfa á einn þátt. Klukkutíma seinna kom Haukur heim og það fyrsta sem Magnús sagði algjörlega óumbeðinn var: „Takk pabbi, fyrir að setja Diego inná tölvuna fyrir mig.“ Og þetta gerir hann bara ansi oft algjörlega óumbeðinn. Þannig að kurteisisuppeldið er greinilega að skila sér eitthvað, hehe. Hann er nú samt ekki alltaf svona kurteis og góður. Það væri nú lygi ef maður sagði að 3 ára barn væri ALLTAF þægt og gott. Hann tók tímabil í janúar þar sem hann fór að öskra og vera með einhver leiðindi og frekju við okkur foreldrana en það er nú eiginlega alveg búið núna sem betur fer. Úff, ég sé það að ég gæti skrifað endalaust en ég læt þetta nægja í bili. Kv, Anna Lillý og Hlíðargerðispakkið .:: 13.1.2010 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Gleðilegt ár allir saman !!! Við höfðum það alveg svakalega gott um jólin og áramótin. Fórum í heil tíu jólaboð þannig að það var nóg að gera hjá okkur og mjög gaman. Fyrir þá sem ekki vita þá eigum við von á öðru barni þann 17.júní n.k. og erum við afskaplega hamingjusöm með það. Magnús er rosalega spenntur. Hann er alveg með það á hreinu að þetta sé strákur og að hann eigi að heita Maggi. Hann kemur stundum hlaupandi upp að mömmu sinni og tekur utan um kúluna og spyr hvort hann megi kyssa hana. Voða sætt. En hentum inn nokkrum myndum frá desember fyrir áhugasama. .:: 2.12.2009 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Nóvember myndir komnar inn.
.:: 14.10.2009 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Nú er Magnús okkar orðinn þriggja ára. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða. Settum inn nokkrar myndir frá september og frá afmælinu hans. .:: 2.12.2009 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Jæja, þá er sumarið senn á enda. Við höfum haft það mjög fínt í sumar. Vorum í fríi frá miðjum júlí til miðs ágústs. Byrjuðum reyndar sumarfríið á að vera veik í nokkra daga en fórum svo í Þórsmörk, Húsafell og Akureyri og gerðum margt margt fleira skemmtilegt. Magnús afrekaði það í sumarfríinu að hætta með bleyju. Það tók aðeins eina viku með nokkrum slysum og svo bara búið. Hefur ekki komið slys eftir það. Ofboðslega duglegur strákur. Svo ætlar hann bráðum að hætta með snuðið. Hann ætlar að gera það áður en hann verður þriggja ára. Hann er með þetta alveg á hreinu. Hann fór með ömmu Dóru í heimsókn í gær til Siggu vinkonu hennar. Þegar hann kom heim spurðum við hann hvert hann hefði farið þá sagði hann: "Við fórum til Erlunnar hennar ömmu". Mjög fyndið því ein vinkona mömmunnar heitir Erla og vinkona ömmu Guðrúnar heitir líka Erla og þá auðvitað hélt hann að allar vinkonur væru Erlur. En látum þetta gott í bili. Það eru komnar myndir frá ágúst. Endilega skrifið í gestabókina. .:: 4.8.2009 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Það eru komnar myndir frá júlí. .:: 17.7.2009 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::. Komnar myndir frá júní !!! .:: 17.6.2009 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Komnar myndir frá maí og byrjun júní. .:: 25.5.2009 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Sælt veri fólkið. Héðan er allt gott að frétta að vanda. Við erum öll hress og kát. Við fengum reyndar einhverja leiðinda pest í lok mars og byrjun apríl en sem betur fer ekkert meira. Apríl er búinn að vera afmælismánuðurinn mikli. Við fórum í eitt tveggja ára afmæli, eitt þriggja ára og eitt fjögurra ára afmæli. Allt mjög skemmtilegt. Svo fórum við líka á Skoppu og Skrítlu í leikhúsinu sem var algjört æði. Magnús gjörsamlega elskar allt sem heitir leikhús og sögur og myndir. Hann gæti setið allan daginn og horft á eitthvað skemmtilegt eða hlustað á góða sögu. Magnús er líka orðinn svo svakalega stór. Hann sagði við mömmu sína um daginn: „ Mamma mín, halt þú bara áfram að sofa, ég skal bara fara niður og leika mér.“ Svo bara fór hann niður og lék sér í tæpan klukkutíma og hann er farinn að gera þetta núna á morgnanna, fer einn niður og leikur sér þangað til við vöknum. Very nice !!! Later .:: 25.5.2009 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Birgir, Mikaela og stelpurnar voru hér á Íslandi í febrúar. Það var voða gaman. Við fórum m.a. með þeim í Húsdýragarðinn og í bíó á Skoppu og Skrítlu. Magnúsi fannst það algjört æði. Stefnum á að fara á leikritið fljótlega. Magnús var Íþróttaálfurinn á öskudaginn. Fór í íþróttaálfanáttfötum í leikskólann og var það svaka fjör. Svo eftir leikskóla kom Björg frænka í heimsókn og þá komu fullt af krökkum og hringdu dyrabjöllunni og sungu fyrir okkur og fengu nammi í staðinn. Magnús og Björg voru voða dugleg að gefa nammi. Þau þurftu ekki einu sinni að fá nammi sjálf, þeim fannst bara svo gaman að gefa. Svo er Magnús með eitthvað æði núna og spyr hvað allt sé á ensku. T.d. þegar við erum að lesa spyr hann: „Hvað er ljón á engu? Hvað er þetta á engu, hvað er hitt á engu?“ o.s.frv. (getur sko ekki sagt ess). Voða fyndið. Bæ í bili, komnar nýjar myndir. .:: 7.2.2009 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Höfðum það rosa gott í janúar. Fórum til Akureyrar í smá frí, voða næs. Magnús var nánast syngjandi allan tímann og að leika sér við bílana sína. Hann er svo fyndinn, hann lætur bílana tala saman og þá snýr hann þeim svo þeir horfist í augu og svo notar hann setningar úr Cars bíómyndinni eins og: „Ekki í mínum bæ, laxi“ og „Ekki málið, Doksi“ og breytir röddinni sinni. Annars bara allt við það sama. Setti inn nokkrar myndir frá janúar og einnig fleiri myndir sem Biggi vinur okkar tók af okkur fyrir jólin. Kveðja úr Hlíðargerðinu .:: 12.1.2009 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Gleðilegt nýtt ár !!! Við höfðum það rosa gott um jólin og áramótin, allir frískir og glaðir. Magnús er farinn að tala svakalega mikið. Það kom reyndar ein vika þar sem hann stamaði all svakalega og við vorum farin að hafa miklar áhyggjur en svo er þetta víst alveg eðlilegt á þessum aldri og er sem betur fer horfið að mestu núna. Magnús er svolítið að lemja frá sér og ýta í aðra í staðinn fyrir að segja Nei, ég vil ekki. Þeir eru nokkrir á leikskólanum sem gera þetta. Hann er líka mikið að pæla í þessu núna. Hann sagði til dæmis um matarborðið um daginn: ....... ekki góður, hann lemja mig á leikskólanum. Svo sagði hann við pabba sinn í bílnum: Pabbi, þú ert góður, þú ekki lemja Magnús. Magnús góður, ég ekki lemja pabba. Svo sagði hann við mömmu sína einnig í bílnum um daginn: Mamma, þú ert góður vinur minn, ég elska þig. Svo er Magnús orðinn algjör púslisti. Hann gjörsamlega elskar að púsla. Hann fékk nokkur lítil púsl í skóinn frá jólasveininum með 10 púslum og sá jólasveinninn að það var allt of auðvelt fyrir hann. Svo fékk hann Leiftur McQueen púsl með 15 púslum í jólagjöf og getur hann púslað það blindandi og svo fékk hann líka Bangsímon púsl með 30 púslum og getur hann líka púslað það en reyndar með smá hjálp. Algjör snillingur. Jæja, segjum þetta gott í bili
.:: 11.12.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Jæja, þá fer að líða að jólum. Magnús er súperhress eins og vanalega. Fórum í síðasta íþróttatímann í lok nóvember og vorum við að setja inn myndir frá því. Gleðileg jól allir saman !!! .:: 9.11.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Nú er stráksi orðinn 2 ára. Afmælið gekk mjög vel. Það komu um 20 manns á sunnudeginum og svo 17 manns í mat á mánudeginum. Magnús var mjög ánægður með sig. Hann fékk fullt af flottum og skemmtilegum pökkum. Hann fékk líka kórónu á leikskólanum og þar var sungið og dansað. Leikskólakennarinn sagði að hann hafi sungið afmælissönginn allan daginn. Svo hélt hann því líka áfram allan mánuðinn. Magnús er farinn að kunna mörg lög utanað, lög sem hann lærir á leiksólanum og við ekki kunnum og er með hreyfingarnar alveg á hreinu. Við syngjum alltaf saman áður en hann fer að sofa, stundum segir hann ,,mamma (eða pabbi), ekki þú syngja“ og þá syngur hann Dvel ég í draumahöll alveg sjálfur, allt lagið. Algjör dúlla. Magnús og Grímur frændi byrjuðu í Litla íþróttaskólanum í september og finnst þeim það algjört æði. Grímur var svo hjá okkur alla þarsíðustu helgi og voru þeir algjörir englar. Rosa duglegir að leika saman og að skiptast á, þ.e. með smá leiðsögn. Þeir vildu stundum hafa sama dótið en þá kenndum við þeim að telja uppá fimm og skiptast svo á. Og voru þeir svo byrjaðir á því alveg sjálfir einir inní herbergi. Rosa sætt. Gaman að fylgjast með þeim. Segum þetta gott í bili, endilega kíkið á nýjar myndir. .:: 3.10.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::. Nú er Magnús kominn á fullt á leikskólanum. Honum finnst þvílíkt gaman og vill helst ekki fara heim þegar við sækjum hann. Svo verður Magnús 2 ára eftir þrjá daga. Og hann veit sko alveg af því. Þegar hann er spurður hvenær hann eigi afmæli segir hann "sjötta oktober" "tveggja" "pakka" "mamma baka". Alveg með þetta á hreinu. En setti inn nokkrar myndir frá því í september. .:: 6.9.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Uppá síðkastið höfum við mest verið að slappa af heima og farið í sund og bæinn og fl. Nýjasta nýtt hjá Magnúsi er að hann telur upp á tíu svona tíu sinnum á dag. Hann reyndar sleppir yfirleitt þrír og fimm og svo klappar hann fyrir sjálfum sér. Svo kann hann að stafa nafnið sitt (já hann er ekki orðinn tveggja ára) og er farinn að kunna nokkur lög utanað. Við syngjum stundum lagið Dvel ég í draumahöll áður en Magnús fer að sofa og síðustu þrjú kvöld hefur hann tekið undir hástöfum með öll orðin á hreinu. Kom þvílíkt á óvart. .:: 10.8.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Það var stuð í júlí !!! Við vorum öll þrjú í fríi og höfðum það voða kósý. Við ferðuðumst aðeins og nutum góða veðursins. En nú er vinnan byrjuð aftur og Magnús byrjaður aftur hjá dagmömmunni og er hann voða spenntur yfir því. Dagmamman var voða hissa hvað Magnús var farinn að tala mikið. Hann er nefnilega nánast altalandi strákurinn. Svo er hann orðinn svolítið stríðinn. Honum finnst voða gaman að gera það sem hann á akkúrat ekki að gera og glottir út í eitt. Bara fyndið. En það eru komnar nýjar myndir. .:: 7.7.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Hei hó jibbí jei og jibbí jei, trallalala júní er búinn. Við gerðum ýmislegt skemmtilegt í mánuðinum. Við fórum til dæmis í sumarbústað til Dóru og Ægis í Húsafell þar sem voru fjórir litlir strákar á svipuðum aldri, fórum til Akureyrar með ömmu og afa og Birgi og Mikaelu og stelpunum og fórum á ættarmót á Stokkalæk. Alls staðar þvílíkt fjör. Svo fórum við oft og mörgum sinnum uppí land og það var sko ennþá meira fjör. Þar er nefnilega grafa sem afi á og fjórhjól og fleira skemmtilegt. Grímur og Úa komu líka oft í heimsókn og það er sko mesta fjör sem hægt er að hugsa sér. Magnús talar um þau á hverjum einasta degi og hann stekkur hæð sína í loft upp þegar þau koma í heimsókn og dansar og skríkir af gleði. Ekkert grín sko. Fórum einnig í þrjú afmæli og Magnús er farinn að kunna afmælissönginn utanaf. Hann syngur hann þegar hann er laggstur uppí rúm á kvöldin og þegar hann vaknar á morgnanna. Og hann syngur hann sko hástöfum, þvílíkt fyndið. Magnús lærir nýtt orð á hverjum degi, hann er núna farinn að segja 3-4 orð í setningu. T.d. sagði hann um daginn ,,takk fyrir ísinn, amma". Man ekki fleira í bili, heyrumst .:: 12.6.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Af okkur er allt gott að frétta. Magnús er alltaf að stækka og stækka, orðinn 20 mánaða. Hann er farinn að tala mjög mikið og farinn að tengja saman tvö orð. Hann er meira að segja farinn að segja frá af fyrra bragði. Til dæmis var Magnús í pössun hjá ömmu sinni og afa um daginn og afi hafði verið að bora saman hillu. Um kvöldið þegar Magnús var kominn heim sagði hann ,,afi bora“ og þar með vissum við það. Jæja, það eru komnar myndir frá maí. See you later, Hlíðargerðisfjölskyldan ógurlega .:: 22.5.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Vorum að setja inn ný myndbönd frá því Magnús var 16-17 mánaða. Góða skemmtun !!! .:: 22.5.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Hæ hæ. Díses, bráðum 2 mánuðir síðan við skrifuðum seinast. Jæja, en héðan er allt gott að frétta að vanda. Nú fer Magnús alveg að verða 19 mánaða. Hann er orðinn 12,2 kg og 82,5 cm. Hann er að fíla sig í botn hjá dagmömmunni, vinkar bara bæbæ þegar við förum með hann og vill varla fara heim þegar við sækjum hann. Svo byrjar hann á leikskóla í ágúst eða september. Það verður stuð !!! En Magnús er búinn að vera þokkalega hress undanfarið, fékk reyndar flensuna í lok mars ásamt pabbanum og fékk svo smá hita í 3 daga núna í lok apríl. Annars bara SÚPER hress. Mamman fór til Svíþjóðar í 5 daga með vinkonum sínum í byrjun apríl og var það ofboðslega gaman. Þegar hún kom heim voru feðgarnir búnir að fara í klippingu og henni fannst Magnús sinn hafa elst um nokkur ár við það. Orðinn svaka fullorðinslegur. Svo fórum við skötuhjúin til London núna í lok apríl í árshátíðarferð með nýju vinnu pabbans. Jebbs, pabbinn er sem sagt hættur hjá Glitni og farinn að vinna hjá Eskli. Þetta var þvílíkt notaleg ferð. Alltaf gaman að koma til London. En nú er sumarið komið og við erum farin út að leika. Heyrumst síðar, vonandi sem allra fyrst. Endilega kíkið á nýju myndirnar (sem eru nú ekki margar í þetta sinn). Setjum svo inn ný myndbönd fljótlega. .:: 6.3.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Hér er stuð og gaman. Magnús er alveg að springa úr kæti þessa dagana. Hann gengur um með hendur fyrir aftan bak eins og hann eigi heiminn og sveiflar þeim svo til og frá og kýlir þeim uppí loftið og öskrar af kæti. Hann er reyndar að byrja á einhverju sjálfstæðis tímabili núna og er stundum að stríða okkur svolítið. En það er bara fyndið !!! T.d. gerir hann sig alveg stífan þegar við setjum hann í bílstólinn og svo fer hann bara að hlæja. Svo vill hann helst fara sína eigin leið þegar við förum út að labba, vill sko ekki leiða mann. Nei nei, orðinn allt of stór fyrir það. Biðjum að heilsa í bili og það eru komnar nýjar myndir .:: 6.3.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Hæ hæ Vorum að setja inn myndir frá janúar og myndbönd frá því Magnús var 13-14 mánaða. Góða skemmtun !!!! Kveðja úr Hlíðargerðinu .:: 20.1.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Jidúddamía !!! Janúarmánuður bara meira en hálfnaður áður en maður veit af. En desembermánuður var skemmtilegur mánuður. Pabbinn byrjaði í feðraorlofinu sínu og mamman var í fríi líka. Hún skellti sér í nokkra daga í húsmæðraorlof til Þýskalands með vinkonum sínum. Þar skemmti hún sér þvílíkt vel við að labba um jólamarkaðina, versla jólagjafir og borða góðan mat í góðra vina hópi. Svo höfðum við fjölskyldan það fínt um jólin. Magnús var reyndar veikur milli jóla og nýárs, var með hita í 4 daga og fékk barkabólgu og bronchitis. En hann var góður á aðfangadag og var svo aftur orðinn frískur á gamlársdag þannig að hann slapp ágætlega. Magnús byrjaði svo hjá dagmömmu í byrjun janúar og honum finnst ógeðslega gaman. Mamman byrjaði líka að vinna í byrjun janúar, svolítið skrítið eftir að hafa verið í orlofi í 15 mánuði en líkar mjög vel. Pabbinn er áfram í feðraorlofi í janúar og byrjar svo í nýju vinnunni, Glitni, í lok janúar. Spennó, spennó. Magnús er nú farinn að labba, byrjaði bara nokkrum dögum eftir 15 mánaða afmælið sitt. Og svo er hann alltaf að læra ný og ný orð. Gaman gaman. Kveðja, Hlíðargerðisfjölskyldan ógurlega p.s. Það eru komnar nýjar myndir frá desember og svo ætlum við að setja inn videó á næstu dögum .:: 12/3/2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Bráðum koma blessuð jólin, börnin fara að hlakka til.... Jebbs, Magnús er sko alveg að deyja úr spenningi yfir jólunum. En nóvembermánuður hefur verið kvef og hósta mánuðurinn mikli hjá honum Magnúsi okkar og svo fékk hann líka barkabólgu og bronchitis en hann er allur að jafna sig á því. Hins vegar er hann alltaf með einhvern leiðinda niðurgang, gaman gaman. En það hefur sko ekki sést á honum að hann hafi verið eitthvað veikur því hann hefur aldrei verið jafn hress og skemmtilegur. Hann er svooooo ánægður með lífið drengurinn (nema þegar hann fær ekki eitthvað sem hann vill, þá er sko heimsendir á næsta leiti, hihi). Svo er hann líka farinn að sofa svo lengi á morgnanna sem er algjör lúxus. En það sem Magnúsi finnst skemmtilegast þessa dagana er að ryksuga og að dansa. Hann bendir á geymsluna til að fá ryksuguna og svo bendir hann á útvarpið til að fara að dansa. Og ef það er ekki nógu skemmtilegt lag í útvarpinu þá bara skiptir hann um stöð. Honum finnst teknó langskemmtilegast, þá dillar hann sér í takt við tónlistina af miklum ákafa. Ætla að setja inn videó fljótlega til að sýna ykkur. Endilega fylgist með !!! Magnús á nokkrar bækur og hann er farinn að kunna þær allar utanað. Ein bókin er um kisur sem eru að leika sér að bolta og svo dettur boltinn út í ána. Magnús hefur miklar áhyggjur af boltanum, bendir og bendir á boltann og verður ekki rór fyrr en við flettum á næstu blaðsíðu þar sem hundur kemur og bjargar boltanum. Svo þekkir hann nánast öll 100 orðin í bókinni „Fyrstu hundrað orðin“. Ef við spyrjum um eitthvað, t.d. borvélina, þá flettir hann upp á þeirri blaðsíðu og bendir á. Voða duglegur. Svo er ein bók sem við lesum yfirleitt fyrir háttinn sem honum finnst mjög gaman að skoða. En stundum ef hann er orðinn voða sybbinn þá bara flettir hann strax uppá síðustu blaðsíðunni og bendir á strákinn sem er sofandi í rúminu sínu og það þýðir bara að hann vill fara strax að lúlla. Þá bara sitjum við hann í rúmið og hann er sofnaður eftir nokkrar sek. Svo er alltaf að bætast við orðaforðann. Bæbæ, hæææææ, hoppa og gúgú er nýjasta nýtt. Látum þetta nægja í bili, Hlíðargerðisfjölskyldan .:: 11/3/2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Ein ég sit og sauma inn í litlu húsi. Nú er Magnús að taka lúrinn sinn og þá sest ég yfirleitt niður og sauma. Nei, djók. Þá sest ég oftast niður og kíki í tölvuna og geri hitt og þetta. Ákvað sem sagt núna að skrifa nokkrar línur um hann Magnús okkar. Magnús er hress og kátur að vanda. Síðast þegar ég skrifaði þá var hann nýorðinn eins árs og farinn að vera með einhverja pirrings stæla, leggjast niður og stappa fótum og eitthvað. Ég held að hann hafi bara ekki alveg verið tilbúinn að verða eins árs og tók það út svona í nokkra daga því hann er alveg hættur þessu núna. Sem sagt orðinn ánægður með aldurinn, hehe. Hann gengur meðfram öllu og klifrar uppá borð og stóla og stendur stundum einn og óstuddur en hann er ekki farinn að labba. Held það verði svolítið í það, hann er voða varkár. Svo er hann farinn að tala voða mikið. Hann segir mama, pabba, ama, ava, datt, dudda, ebe (vínber og jarðaber), ke (kex), bana (banani), sja(sjáðu), sko(skór) og hæ. Svo hermir hann eftir fullt af hljóðum eins og bílum, flugvélum og klukkunni (tik tak tik tak). Og dýrahljóðum eins og apanum, hestinum, hundinum, ljóninu, kisunni o.fl. Annars erum við nú bara mest heima að leika, sérstaklega þegar það er vont veður. Ég byrjaði reyndar í leikfimi í síðustu viku og Magnús fer í pössun á meðan og það finnst honum æði. Loksins einhverjir aðrir til að leika við en bara mamma. Svo förum við í sund einu sinni í viku, mömmumorgna einu sinni í viku, frændsystkinahitting og búðaráp o.fl. ofl. þannig að það er nú alveg nóg að gera. p.s. Það eru komnar fleiri myndir frá október .:: 10.10.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Þá er sumarið loksins búið hjá okkur og veturinn bara á næsta leiti. Við fórum sem sagt til Spánar í byrjun september og vorum í 12 daga í tilefni sextugsafmæli ömmu Dóru. Það var svaka fjör, öll fjölskyldan saman komin. Magnús fékk reyndar í magann og leið ekki alveg nógu vel en honum fannst nú samt rosa gaman þrátt fyrir það. Svo fórum við hjónaleysin til Parísar í lok september í árshátíðarferð með vinnunni hans Hauks og var Magnús hjá öfunum og ömmunum á meðan. Það gekk alveg súper vel. Rosa þægur og góður drengurinn. Magnús átti svo 1 árs afmæli núna 6. október og var afmælið haldið upp í sumarbústað og kom fullt fullt af fólki. Og hann fékk alveg fullt fullt af pökkum sem hann hafði akkúrat engan áhuga á að opna en hann er samt voða ánægður núna með allt saman. Rosa gaman að fá nýtt dót til að leika við og ný föt til að vera í. Nú er aðalsportið þessa dagana að benda á það sem hann vill og öskra. Hann er sko mjög ákveðinn drengurinn, veit alveg hvað hann vill og hvað ekki. Til dæmis vorum við að smakka bláber, jarðaber og vínber um daginn og fannst honum allt voða gott en jarðaberin voru best þannig að hann benti bara á þau og öskraði. Gott samt að geta gert sig skiljanlegan. Svo er hann nýfarinn að taka upp á því að leggjast í gólfið og væla eða fetta sig aftur ef hann verður eitthvað pirraður. Til dæmis fékk hann bíl í afmælisgjöf sem er með loki á sem er hægt að opna og loka en það er samt svolítið erfitt að ná taki á lokinu og þegar það ekki gengur þá er bara lagst í gólfið og vælt. Dálítið fyndið. Annars er hann nú yfirleitt í góðu skapi, sem betur fer. Stundum trúum við bara ekki hvað við eigum þægan og góðan strák. Bæ í bili .:: 31.8.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Jæja, þá er sumarið brátt á enda þó það sé nú eiginlega bara rétt að byrja hjá okkur. Pabbinn bara nýkominn í sumarfrí og svona. Við skruppum til Akureyrar um daginn og fengum þvílíkt gott veður. Fórum m.a. í sund, slöppuðum af í Kjarnaskógi og skoðuðum Laufás. Svo fengum við okkur náttúrulega ís í Brynju,borðuðum á Greifanum og Bautanum og löbbuðum bæinn þveran og endilangan og fórum á kaffihús svo eitthvað sé nefnt. Í næstu viku erum við svo að fara til Spánar í tilefni sextugsafmælis ömmu Dóru. Þá munum við öll fjölskyldan, 14 talsins, vera saman í þvílíkt flottri Villu uppí sveit, 30 mínútum frá Alicante. Það verður ábyggilega svaka fjör. Við hlökkum allavega geðveikt mikið til. Annars er bara the same old same old. Magnús alltaf hress og kátur og svona. Það allra skemmtilegasta núna er að skríða upp og niður tröppurnar heima, foreldrarnir alveg komnir með harðsperrur og læti. Enda er næst á dagskrá að setja hlið fyrir stigann. Tennurnar spretta svo upp eins og gorkúlur. Kominn með tvær tennur uppi og tvær niðri núna á einum mánuði. Svo er alltaf að bætast við orðaforðann hans. Núna er það goglí goglí, adda adda og fleira óskiljanlegt. Svo fyrir þá sem hafa áhuga á tölum þá vóg hann 10.070 gr og var 73 cm í 10 mánaða skoðuninni. Bless í bili, Hlíðargerðisfjölskyldan ógurlega .:: 30.8.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Nú er júlímánuður brátt á enda. Magnús Þór nálgast 10 mánuðina óðfluga. Við skiljum bara ekkert í þessu. Hann er bara að verða krakki, ekkert ungabarn lengur sko. Orðinn sigldur strákurinn og allt. Við skelltum okkur nefnilega til Kaupmannahafnar í síðustu viku, frá sunnudegi til fimmtudags. Þetta var algjör skyndiákvörðun hjá okkur. Fengum lánaða íbúð Auðar og Franks sem voru á Íslandi. Íbúðin er á fimmtu hæð og það er sko hægara sagt en gert að labba þar upp með barn og töskur og innkaupapoka (enda fórum við bara út snemma á morgnanna og komum heim seint á kvöldin). Við dáumst að þeim að búa þarna með lítið barn. En geggjað flott íbúð og á mjög góðum stað í bænum. En hvað gerðum við nú í Köben? Jú við löbbuðum um, kíktum í búðir, löbbuðum aðeins meira, kíktum í Tívolí, löbbuðum svo aðeins meira, hittum svo Grétu frænku alveg þrisvar sinnum og löbbuðum svo aðeins meira. Það var voða gaman að hitta Grétu og sjá hvernig hún býr sem er voða flott. Allt voða flott og fínt í Köben. Við erum bara að hugsa um að flytja þangað. Nei djók !!! Við höfum það allt of gott hér heima í litla fína húsinu okkar. Magnús er annars farinn að skríða á fullu, farinn að labba meðfram hlutum og aðeins farinn að labba með. Aðalsportið núna er að klifra upp mömmu sína og hanga í henni, hihihi. Það hefur líka aðeins bæst við orðaforðann hans. Seinast þegar við skrifuðum var hann farinn að segja mama,dada, baba og gojgoj og nú hefur bæst við gagaga, vooo og da(tt). Hann hefur óstjórnlegan áhuga á bílum og flugvélum. Hann er meira að segja farin að hreyfa hendina uppí loftið eins og flugvél og segja úúúuu þegar flugvélarnar fljúga yfir og svo segir hann brrrr brrrr þegar hann leikur sér að bílum. Hmmm hvað meira? Já, hann fékk fyrstu tönnina sína úti í Köben og er það framtönn í efri gómnum. Vei!! Annars er lítið annað að frétta. Látum myndirnar bara tala sínu máli. .:: 8.7.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Níu mánaða gutti í dag!!! Tíminn flýgur og alltaf nóg að gera. Magnús Þór var tvisvar sinnum veikur í júní. Í byrjun júní fékk hann barkabólgu og svo um miðjan júní fékk hann 40 stiga hita í sólarhring og útbrot og læti. Þar síðustu helgi fórum við í bústað í Húsafell. Þar fórum við á brennu þar sem var dansað og sungið. Hjómsveitin Feðgarnir var sko alveg að slá í gegn, hihi. Við mæðginin skelltum okkur svo í Þórsmörk síðustu helgi til að taka á móti vinahópnum sem var að labba Laugarveginn. Það var rosa stuð. Tókum rútuna og Inga vinkona kom með. Magnús Þór var alveg að fíla sig í tætlur allan tímann og hann eignaðist fullt af öfum sem vildu ólmir fá að passa hann. Já, svo er Magnús nánast farinn að skríða, vantar bara herslumuninn. Hann dregur sig áfram á höndunum en ef hann kemst á gott teppi þá getur hann notað fæturnar líka. Svo togar hann sig upp og stendur við borð og veggi og í rúminu sínu og er farinn að vinka bæ og stundum klappa. Svo segir hann, mama mama, dada dada, baba baba og goj goj goj. Svo var hann 9230 gr og 70 cm í 8 mánaða skoðuninni. Bæ í bili. Og það eru komnar júnímyndir !!! .:: 17.10.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Þá er snáði orðinn sjö og hálfs mánaða. Skelfilegt hvað tíminn er fljótur að líða. Það gengur allt sinn vanagang hér hjá okkur. Vakna, borða, leika, sofa, vakna, borða, leika, sofa o.s.frv. Magnús sefur mjööööög vel, borðar eins og svín (enda orðinn algjör fitubolla) og finnst geggjað gaman að leika. En hann er sko enginn dundari, honum finnst lang skemmtilegast þegar verið er að leika við hann, þá er hann svo áhugasamur að hann ræður varla við sig af kæti en þegar hann er einn þá verður hann ofboðslega pirraður. En hann er nú samt allur að koma til, t.d. í gærkvöldi heyrðist ekki í honum í langan tíma, þá var hann að skoða bók og við foreldrarnir litum bara hvort á annað og spurðum okkur hvort þetta væri virkilega barnið okkar. Svo lá hann líka algjörlega afslappaður á gólfinu og horfði á okkur til skiptis í heillangan tíma og við áttum bara ekki til eitt aukatekið orð. Það gæti nú líka verið að vökvinn í eyranu sé að hverfa og þá líður honum betur. En annars er Magnús farinn að sitja alveg óstuddur og dregur sig aðeins áfram á gólfinu og það er ábyggilega ekki langt þangað til hann fer að skríða. Hann lærir alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi og það er alveg meiriháttar að fylgjast með honum uppgötva hlutina. Núna er aðalsportið að skoða ljósin hvert sem hann fer. Ef maður spyr: Hvar er ljósið? Þá lítur hann alltaf upp og fer að brosa. Honum finnst líka svaka sport að vera í göngugrindinni, þá er skemmtilegast að fara í eltingaleik eða elta bolta. Svo er búið að vera svo gott veður að við höfum verið dugleg að fara út í göngutúra og leika í garðinum. Skemmtilegast er að fara út á róló sem er í götunni okkar og róla. Það er sko geggjað stuð, fer alveg að skellihlæja. Við erum einnig búin að fara í tvær helgarferðir upp í sumarbústað, fyrra skiptið þegar afi Siggi var sextugur og seinna skiptið síðustu helgi uppí bústað til afa Magga og ömmu Dóru. Er ábyggilega að gleyma fullt af hlutum, en þeir sem vilja vita meira verða bara að koma í heimsókn. Erum alltaf með heitt á könnunni (eða sko kók í ísskápnum, mamman kann ekki að hella uppá, hihi). Endilega kíkið við. Magnúsi finnst nefnilega svo gaman að fá heimsóknir, hann er stundum alveg að klepra á mömmu sinni. Kveðja úr Hlíðargerðinu p.s. það eru komnar nýjar myndir !!!!! .:: 20.4.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Gleðilegt sumar allir saman!!! Hér á bæ er alltaf nóg að gera, mikið fjör og mikið gaman. Magnús Þór er orðinn sex og hálfs mánaða og dafnar mjög vel að vanda. Hann er orðinn 7.780 gr og 67 cm. Hann er mikill orkubolti og vill láta hafa svolítið fyrir sér. Hann fékk kvefpest um páskana og uppfrá því hefur hann verið að fikta mikið í eyrunum og er búinn að vera svolítið vælinn síðustu daga, sem hann er nú ekki vanur að vera. Afi Maggi kíkti í eyrun og telur hann líklegt að það sé vökvi í eyrunum og erum við nú að gefa honum nefdropa sem við vonum að virki vel. Annars er ekkert nýtt að frétta, akkúrat núna er Haukur að leggja Magnús Þór í rúmið og er hann sofnaður á skiptiborðinu, hihihihi !!! Haukur fer svo til Atlanta á sunnudaginn og verður í viku þannig að við mæðginin verðum bara tvö heima. Kv, Anna L .:: 3/14/2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::. Hæ hæ allir. Af okkur er allt gott að frétta. Magnús Þór stækkar og stækkar með hverjum deginum. Hann er nú orðinn 5 mánaða og orðinn 7090 gr og 65,5 cm. Hann er orðinn það stór að hann er farinn að sofa einn inni í sínu herbergi. Það er nú vegna þess að um síðustu helgi gisti Magnús Þór eina nótt hjá ömmu Dóru og afa Magga og hann svaf svo rosalega vel einn inni í herbergi að við ákváðum að prófa heima og gengur það svona glimrandi vel. Hann rumskaði bara einu sinni í nótt og fékk að drekka, sofnaði svo strax aftur og svo vöknuðum við bara við það í morgun að hann var hjalandi inní rúmi. Þegar við kíktum inn til hans brosti hann bara út að eyrum, greinilega svakalega montinn með að vera kominn í sitt eigið herbergi. Hann byrjaði að smakka graut í síðustu viku og finnst honum hann algjört æði. Svo höfum við leyft honum að bragða epli, banana og gulrætur. Mæðginin byrjuðu á íþrótta- og tónlistanámskeiði á mánudaginn og Magnús Þór var alveg að fíla sig í tætlur. Hann var reyndar voða hissa í byrjun en þegar við stóðum upp og fórum að dansa þá spriklaði hann fótunum á milljón og skríkti eins og hann gerir alveg upp á háa C. Hann er greinilega upprennandi dansari og söngvari drengurinn (eða fótboltasnillingur vill pabbinn meina). En nóg í bili. Settum inn nýjar myndir. .:: 26.2.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Vá, febrúar fer bara að verða búinn og við enn og aftur löt að bæta inná síðuna. Það skemmtilegasta í þessum mánuði var nuddið og sundið. Magnús Þór var sko alveg að fíla nuddtímana í botn. Hann var alltaf einn eftir á nuddbekknum þegar tíminn var búinn og vildi bara meira, hehe, á meðan hin börnin voru öll orðin þreytt og vildu komast burt. Hann var samt ekki að fíla sig alveg jafn vel í sundinu. Þ.e.a.s. þegar kennarinn tók hann og hélt honum hátt hátt upp í loftið, þá kom bara þessi þvílíka skeifa á hann. Og líka þegar kennarinn setti hann í kaf en svo var allt í lagi ef mamma setti hann í kaf. Ekki sama hver er sko. Það leiðinlegasta í þessum mánuði var lungnabólgan sem Magnús Þór fékk. Hann var með mikinn hósta og slím og kúgaðist oft af öllum átökunum. Hann fór á sýklalyf og fékk púst og er hægt og bítandi að jafna sig. Við foreldrarnir vorum líka veik þannig að þetta er búið að vera algjört pestabæli hér síðustu 2 vikurnar. En við erum þvílíkt fegin að veikindin séu að taka enda því við erum orðin svolítið þreytt á að hanga alltaf inni. Hlökkum til að fara í sundið aftur og geta farið út að labba í vagninum. En þrátt fyrir þessi veikindi þá hefur Magnús Þór verið ofboðslega hress og kátur. Hann er gjörsamlega að bræða okkur foreldrana þessa dagana. Hann brosir út í eitt og er farinn að hlæja hástöfum en bara þegar mamma og pabbi eru, ekki þegar það eru gestir, þá er hann bara voða hissa. Svo er hann farinn að gera ýmsar kúnstir, farinn að velta sér marga hringi á gólfinu og aðal sportið er að horfa afturábak. Svo er líka rosa gaman að fara í kollhnísa og að láta toga sig upp og standa. Þá er hann svaka montinn með sig. Við skötuhjúin fórum á þorrablót í byrjun febrúar og þá var Magnús Þór í pössun hjá ömmu Dóru á meðan.Þetta var fyrsta alvöru pössunin og gekk eins og í sögu. Hann var mjög góður allan tímann og ekkert mál að fara að sofa. Annars rífumst við foreldrarnir um að fá að leggja hann í rúmið á kvöldin því það gengur svo vel. Hins vegar hefur hann verið að vakna oftar og oftar á nóttunni núna síðasta 1 1/2 mánuðinn og var hann farinn að vakna á 2 tíma fresti til að drekka. Það var orðið mjög þreytandi og lítill svefn þannig að nú síðustu daga höfum við gefið honum ábót (þurrmjólk í pela) fyrir nóttina og þambar hann heilan pela eins og ekkert sé og vaknar hann núna bara einu sinni til að drekka. Sefur frá svona 21-22 til svona 5-6, drekkur þá og sefur svo til 8-9. Þannig að þetta er allt annað líf núna, vonandi heldur þetta áfram. Svo erum við að hugsa um að fara að gefa honum graut bráðlega. Svo eru alltaf að bætast við frændfólk í hópinn. Í janúar eignuðust Ásgeir og Maren litla stelpu, í febrúar eignuðust Auður og Frank litla stelpu, svo bætist áfram við í mars, júní, og ágúst (mömmu megin) og júlí (pabbamegin). Svaka gaman að fá svona marga krakka til að leika við í öllum boðunum. Kveðja úr Hlíðargerðinu .:: 1.2.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Jæja, fólk er farið að kvarta undan mynda- og fréttaleysi hér á síðunni. Það er alveg satt, við erum bara löt við þetta en nú verður bætt úr því. Magnús Þór fer nú alveg að verða 4 mánaða og hann stækkar og dafnar mjög vel. Það nýjasta núna er að hann er búinn að uppgötva röddina sína. Í síðustu viku „burraði“ hann út í eitt en nú er hann hættur því og farinn að æpa eða skríkja eins hátt og hann getur, alveg upp á háa C. Ofboðslega gaman hjá honum. Svo um daginn neitaði hann allt í einu að fara að sofa um kvöldið, kom bara þvílík skeifa á hann og hann grét og grét. Við skildum ekkert í þessu því fram að því hafði hann ekki verið að kvarta neitt að ráði. En við tókum bara á því og nú gengur betur að fara að sofa. Annars hefur hann verið alveg eins og engill á daginn, er ofboðslega kátur á morgnanna, sefur svo 2-3 tíma í vagninum fyrir hádegi og svo aftur 2-3 tíma eftir hádegi og er hann yfirleitt bara sofnaður strax og húfan er komin á hann. Algjör draumur !!! Svo vorum við að uppgötva Leikhöllina sem er bara hérna rétt hjá okkur, aðeins 5 mínútur að labba. Þar er hægt að fara á ýmis námskeið. Við byrjuðum í ungbarnanuddi þar í gær og fannst honum það algjört æði. Nú verður hann sko pottþétt eins og pabbi sinn sem elskar nudd. Svo skráðum við okkur á tónlistarnámskeið fyrir 3-7 mánaða börn. Og ekki nóg með það, því við erum að fara að byrja í ungbarnasundi á morgun og hlökkum við fjölskyldan öll mikið til, en það er hjá honum Snorra í Mosó. Þannig að það er sko nóg að gera. Mamman greinilega orðin þreytt á að hanga heima og tekur þetta bara með trompi. Þar til næst, fjölskyldan í Hlíðargerðinu .:: 10.1.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Loksins, loksins. Lillemann er kominn með nafn. Hann var skírður á sunnudaginn og fékk hann nafnið Magnús Þór í höfuðið á afa sínum og langafa. Skírnin fór fram heima hjá okkur og var nánasta fjölskyldan viðstödd um daginn en svo komu vinirnir um kvöldið. Það verður svolítið skrítið að fara að kalla hann nafninu sínu núna eftir að hafa kallað hann lillemann í þrjá mánuði. Við ætlum að stefna að því að nota bæði nöfnin en svo eru komnar tillögur um að kalla hann Magga, Magga Tóta, Móra eða Megas. .:: 20.12.2006 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Hæ hæ allir saman. Er ekki kominn tími á fréttir? Héðan er allt gott að frétta. Litli gutti dafnar vel. Í 9 vikna skoðuninni mældist hann 5050 g og 59,4 cm og er það akkúrat á meðaltalslínunni. Síðast þegar við skrifuðum var hann nýfarinn að sofa vel á nóttunni og hélt hann því áfram í rúma viku, svaf alveg 6-7 tíma í einu en svo hætti hann því og nú vaknar hann eftir svona 4 tíma og sofnar svo aftur en það er bara ágætt, allavega betra en eftir 2 tíma. En nei, hann er ekki enn kominn með nafn, en hann fær vonandi nafn í byrjun janúar, spennó spennó. En þangað til ætlum við að hafa það kósý um jólin og ef við skrifum ekkert inná síðuna þangað til þá segjum við bara gleðileg jól !!! Og það eru komnar nýjar myndir. .:: 11/29/2006 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Vá, hvað tíminn líður... Nú fer litli gutti að nálgast 8 vikurnar. Í 6 vikna skoðuninni var hann 4780 g og 58 cm. Samkvæmt því hefur hann lengst um 8 cm frá fæðingu !!! En annars er allt gott að frétta af okkur. Lillemann breytist dag frá degi og flestum finnst hann vera orðinn alveg eins og Haukur. Hann er með mikið skap sá litli, aðra stundina brosir hann og skríkir af gleði en svo hina stundina grætur hann eins og við vitum ekki hvað. Þá er hann nú yfirleitt svangur eða þreyttur eða eitthvað óöruggur. Hann er svo orðinn rosalega forvitinn og honum líður rosalega vel í poka framan á manni og hann skoðar allt mjög vel sem að augum ber. Næturnar fara svo vonandi að batna eitthvað. Hingað til hefur hann yfirleitt vaknað á 2 tíma fresti en í nótt vaknaði hann bara einu sinni frá kl. 23 til 9:30 og vonum við að framhald verði á því. Svo er hann farinn að hlakka mikið til jólanna, vonandi verður hann búinn að fá nafn þá, en stefnan er að gefa honum nafn annað hvort fyrir jólin eða í byrjun janúar. Nýjar myndir komnar. .:: 12.11.2006 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::. Nú er litli gutti orðinn 5 vikna og hann dafnar mjög vel. Mánaðargamall vóg hann 4400 g sem er rúmu kílói þyngra en þegar hann fæddist. Hann er mjög bráðþroska, kominn með unglingabólur og allt, hihi. Nei djók, bara þessar típísku hormónabólur sem eiga víst að hverfa uppúr 6 vikna aldrinum. Svo er hann mjög misjafn í skapinu. Yfirleitt er hann vær og góður og er meira að segja farinn að brosa og hlæja smá sem er geggjað sætt. En svo tekur hann sig til stundum og er með einhver læti, aðallega þegar hann er orðinn mjög þreyttur. Amma hans og afi pössuðu hann í smá tíma um daginn og lét hann sko alveg í sér heyra á meðan. Sem sagt ákveðinn lítill strákur. En við erum eins og svo oft áður ekki mjög dugleg við að taka myndir en við bættum þó við nokkrum, endilega kíkið á. .:: 7.11.2006 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Nú er stráksi orðinn þriggja vikna og okkur finnst hann vera orðinn svaka stór strákur. Honum var voða illt í maganum í nokkra daga um daginn og grét þá soldið mikið en nú er hann orðinn mikið betri og orðinn vær og góður á ný. Síðustu tvo daga höfum við farið í göngutúr með hann í vagninum fína sem hann fékk frá ömmu sinni og afa í Hafnarfirðinum og í gærusvefnpokanum sem hann fékk frá vinkonum mömmu sinnar og í ullarvestinu sem Mikaela prjónaði og leið honum geggjað vel í þessu öllu saman. Hann á reyndar enga vettlinga þannig að hann var bara með sokka á höndunum en það kom sko ekki að sök. Í bæði skiptin svaf hann hátt í 4 klukkkutíma í vagninum. Svo er hann farinn að fylgjast mjög mikið með og ávallt stutt í brosið. Bættum við nokkrum myndum. Nóg í bili, þangað til næst, Annsí og Hauksi .:: 19.10.2006 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Nú fer litli drengurinn okkar bráðum að verða tveggja vikna og dafnar hann mjög vel. Hann var orðinn 3500 gr 10 daga gamall og stefnir óðfluga á að ná frænda sínum Grími í vexti Við höfum fengið fullt af heimsóknum og hann hefur fengið fullt af flottum pökkum .:: 12.10.2006 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Bættum við nokkrum myndum. Þær eru nú ekki margar, við þurfum greinilega að vera duglegri í að taka myndir. Það er bara meiri vinna en mann grunaði að eiga svona lítið barn. Fyrstu dagarnir hafa gengið ágætlega. Hann fór í bað í gær og líkaði greinilega mjög vel. Svo fórum við í 5 daga skoðunina í morgun og þar stóð hann sig alveg eins og hetja og heyrðist ekkert í honum meðan öll hin börnin í kring hágrétu. .:: 9.10.2006 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Strákurinn mættur! Þann 6. október fæddist okkur hjónaleysunum lítill strákur. Hann vóg 3350 gr. og var 50 cm á lengd. Við stefnum á að búa til nýja síðu fyrir strákinn en þangað til gætu myndir birst hér. |